Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Sullum Bull....eða hvað hann nú heitir sá góði maður.

Margir hafa sem himin höndum tekið þær yfirlýsingar Jóns Bullenberger, eða hvað hann nú heitir sá góði maður, að hann ætli að setja á stofn láverðsverslanir ef hann fái einhverja til að koma því í kring fyrir sig!

Fögnuður manna er samt ekki sprottinn af einhverri aðdáun á Sullinum, enda er sóminn sá dæmdur maður, heldur virðist hann stjórnast frekar af óyfirstíganlegu hatri á Jóni Ásgeiri að boði Valhallar.

Hér á árum áður meðan Sambandið var og hét höfðu menn mjög sterkar skoðanir, sumir sögðu trúarbrögð, hvar þeir versluðu. Við sanntrúaðir Sambandsmenn versluðum aðeins hjá því á hverju sem gekk. Ekkert nema ESSO bensín fór á framsóknarbíla, menn keyrðu frekar bensínlausir en að taka bensín hjá óvininum. Íhaldið hélt sig við SHELL og aðrir við BP o.s.f.v.

Menn voru tilbúnir að skaða sjálfa sig til að fylgja trúnni. Erum við að upplifa það aftur? Verða menn stimplaðir eftir því hvort þeir versla í Bónus eða Bullenmarked?

Talandi um siðferði, þá má vart greina á hvorn hallar, Jón eða Jón.


mbl.is Stutt en söguleg sjóferð Lúðvíks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown mun lúta í gras

Afar góð grein, hliðholl okkur Íslendingum, skrifuð af sanngirni. Trúi því að slíkum greinum eigi eftir að fjölga og umræðan meðal Bresks almennings snúist okkur í vil.

Gordon Brown mun að lokum lúta í gras vegna vanhugsaðar atlögu hans að Íslendingum í þeirri viðleitni að skapa sér skyndivinsældir.

Ætlum við að láta möguleikann á málsókn renna okkur úr greipum? Hvað á aumingjaskapur Geirs Haarde að kosta þjóðina áður en upp verður staðið eða í taumana gripið?


mbl.is Brown sparkaði í Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband