Eiga allir sinn Mugabe?

 Mugabe forseti Simbabve hefur eyðilagt landið. Landið var áður kallað matarkista Afríku vegna kosta þess og gæða  og flutti út matvæli í stórum stíl. Í dag svelta íbúarnir, verðbólga er í þeim hæðum að gamlar Íslenskar verðbólgutölur blikna í samanburðinum.

Erlendum ríkjum er farið að ofbjóða og  þrýsta á afsögn Mugabe, sem ætlar að þumbast hvað sem það kostar vegna eigin ágætis.  Kannast einhver við vandamálið?

Á þetta fyrir okkur að liggja að erlend ríki þurfi að skerast í leikinn þar sem  þaulsetnir Íslenskir embættismenn þekkja ekki sinn vitjunartíma?


mbl.is Mugabe verður að fara frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband